Glögg og fleiri góðir hlutir

25 November 2006 | Rúna

Við erum ofsalega dugleg við að koma okkur í kynni við fólk frá ólíkum löndum og það er byrjað að borga sig nú þegar ýmsar hátíðir ganga í garð. Á fimmtudaginn vorum við boðin í stóra þakkagjörðarhátíðarveislu hjá bandarískum kunningja okkar þar sem við fengum kalkún með fyllingu, “sweet potatoes” og annað tilheyrandi. Við reyndum samt að borða ekki á okkur gat því seinna um kvöldið var okkur boðið út að borða með bandarískri vinkonu okkar og foreldrum hennar sem voru í heimsókn.

Í kvöld munum við heimsækja þýska kunningjakonu sem stendur fyrir jólaboði að þýskum sið. Þar verður boðið upp á þýskt jólaglögg og vonandi þýskar “Lebkuchen” sem mér finnst agalega góðar.

Lambið sem við fengum í gær hjá indverskri-kanadískri vinkonu okkar var að vísu ekki tengt neinni hátíð. En það var svo sannarlega ljúffengur bónus.

3 Comments

  1. Ragnhildur said on 25 Nov 2006 at 17:21:

    mmm, jólaglögg, sehr gut!

  2. harpa said on 27 Nov 2006 at 10:27:

    Damn.. þarf að koma mér upp fjölþjóðlegri vinahópi -sem actually bíður manni í mat. Á reyndar ítalska vinkonu sem þykir gaman að elda og erum við nokkrum sinnum búin að fara í ótrúlegar pasta-og lasagnaveislur. Lygilega gott, og ég sem er ekki pastamanneskja -nema í mat hjá romönu :)

  3. Ágústa R. said on 28 Nov 2006 at 10:23:

    Andrés: Ég var að lesa á mbl.is að það væri jólasveinaskortur í Berlín … !!!

Log in to post a comment.

You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.