Archives for December 2006
Áramót(akveðjur)
31 December 2006 | molar | 2 Comments
Þegar ég kveiki á sjónvarpinu milli hátíða rifjast upp fyrir mér hvað mér þykir best við áramótin. Að þeim loknum losnar maður við helvítis flugeldaauglýsingarnar, sem hljóta að vera meðal þess versta sem sýnt er í sjónvarpi.
Sá sem samdi lagið sem endar á „Hjálparsveit skáta skaffar dótið“ fær engin jólakort frá mér næstu áratugina.
Einsemdin etin burt
14 December 2006 | molar | 1 Comment
Hvað gerir grasekkill sér til dundurs? Hann eldar. Bestu samloku í heimi.
(uppskrift)
Jólafrí
10 December 2006 | molar | No Comments
Þá er stundin loks að renna upp. Þetta árið tek ég mér langt jólafrí í faðmi vina og vandamanna á Íslandinu góða. Ég lendi í Keflavík um miðnætti annað kvöld og verð á landinu í meira en þrjár vikur. Andrés ætlar hins vegar að lifa piparsveinalífi í Brighton í eina viku áður en hann flýgur […]
Einræðisherralottó
3 December 2006 | molar | 2 Comments
Nú eru ekki nema tveir mánuðir síðan ég breyttist úr hugvísindastúdent í félagsvísindastúdent, þannig að ég veit ekki alveg hvernig hlutirnir virka í alþjóðasamskiptadeildinni minni.
Má maður setja af stað veðmál um það hvor hrekkur fyrr uppaf — Pinochet eða Fidel?