Töfralausn í tölvupósti
9 January 2007 | Rúna
Nú eru ekkert alltof margir dagar í skilafrest á ritgerðum fyrir haustönn og ekki laust við að ég væri orðin hálf stressuð vegna þess að “andinn” hefur einhvers staðar týnst á leiðinni milli Íslands og Englands. Í morgun fann ég svo leið út úr stressinu.
Þar sem ég sat við skrifborðið, bíðandi eftir að komast í ham eins og Carrie Bradshaw á góðum degi (hún myndi svosem fíla efnið – karlmenn, konur og kurteisi) fékk ég tölvupóst með töfralausninni. Nei, þetta var ekki bréf frá kennaranum um að frestur hafi verið framlengdur eða ábending á vefsíðu með öllu sem ég þarfnast. Nei, þetta var eitthvað miklu betra:
“A Genuine University Degree in 4-6 weeks!”
“BA BSc MA MSc MBA PhD”
“Within 4-6 weeks! No Study Required! 100% Verifiable!”
Allt er nú hægt á internetinu. Nú get ég bara hætt þessari vitleysu, pantað mér gráðu og farið að slappa af. En fyrst ég er að fjárfesta í þessu á annað borð mun ég að sjálfsögðu ekki láta mér nægja MA-gráðuna heldur færa mig upp í doktorinn í þetta skiptið.
2 Comments
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.
Þessi saga er skemmtileg! Já, kannski lífshamingjan sé fólgin í því að hlaupa um hundblautur með drullusokk á lofti, ég skal ekki segja :o)
100% verifiable og no study required? þetta er skothelt alveg!