Barzan dauður
15 January 2007 | Andrés
Þá er Barzan, litli bróðir Saddams, dauður. Ætli ég hefði nokkuð kippt mér upp við það nema fyrir þær sakir að ég minnist á hann í ritgerðinni sem ég á að skila í dag. Vegna nýjustu atburða þurfti ég að þræla mér í gegnum skjalið og breyta nokkrum sögnum í þátíð.
Gerir það mig að ólíklegasta og óbeinasta fórnarlambi íraskrar aftöku?
Annars efast ég um að kallsins verði helst minnst fyrir það sem ég var að fjalla um — tilraunir hans til að gera heiminn kjarnorkuvopnalausan þegar hann var sendifulltrúi Íraks hjá Sameinuðu þjóðunum. En svona var þeim margt til lista lagt, bræðrunum.
Einsog Hitler. Hann málaði.
Log in to post a comment.
You can follow the discussion through the Comments feed. You can also pingback or trackback from your own site.