Archives for August 2007

Ofvirk?

29 August 2007 | molar | 5 Comments

Gærdagurinn hlýtur að vera afkastamesti dagur lífs míns. Þegar ég fór að sofa í nótt hafði ég afrekað eftirfarandi:

að klára jólagjafainnkaup fyrir árið 2007
að pakka smávegis
að skila inn umsókn fyrir starf
að skila inn umsókn fyrir verðlaunasamkeppni
að fá mér kaffibolla með vinkonu og kveðja hana
að klára mastersritgerðina og prenta hana út

Á dagskránni í dag er bara […]

Read ‘Ofvirk?’

Ellismellir

14 August 2007 | molar | 3 Comments

Nýjasta fíknin á heimilinu eru krossgátur. Ég bíð með óþreyju eftir helgunum, ekki til að djamma, heldur til að leysa helgarkrossgátur Moggans. Laugardagsgátan er klassísk, en sunnudagsgátan er toppurinn á tilverunni þessa dagana. Það var reyndar Andrés sem kom mér upp á lagið með hana. Nú sitjum við skötuhjúin eins og gömul hjón með sitthvora […]

Read ‘Ellismellir’

Olga

2 August 2007 | molar | 2 Comments

Í gær gerði ég eitthvað sem hefur staðið til í langan tíma en ég hef aldrei komið í verk: ég keypti mér ný gleraugu. Þessi kaup voru orðin algjörlega tímabær þar sem gleraugun sem ég á núna eru frá síðustu öld og þar af leiðandi hvorki nógu sterk né nógu töff (þó þau séu, eins […]

Read ‘Olga’

Ágúst

1 August 2007 | molar | 3 Comments

Dagatalið sýnir, mér til mikillar furðu, að ágústmánuður sé runninn upp. Það er því ekki úr vegi að tilkynna þeim sem ekki vita að við erum á leiðinni heim í haust. Fyrir fullt og allt. Eða að minnsta kosti í nokkur ár.
Nú eigum við bara eftir að klára mastersritgerðirnar okkar, finna okkur vinnu og kaupa […]

Read ‘Ágúst’