molar Category Archives

Ný númer

3 September 2007 | molar | 367 Comments

Jæja, þá erum við búin að festa okkur farsímanúmer. Aðdáendum ætti að vera óhætt að henda út þeim mýgrút af númerum sem upp hafa safnast og láta þessi tvö duga. Andrés 892 5427 Rúna 891 6301

Read ‘Ný númer’

Ofvirk?

29 August 2007 | molar | 426 Comments

Gærdagurinn hlýtur að vera afkastamesti dagur lífs míns. Þegar ég fór að sofa í nótt hafði ég afrekað eftirfarandi: að klára jólagjafainnkaup fyrir árið 2007 að pakka smávegis að skila inn umsókn fyrir starf að skila inn umsókn fyrir verðlaunasamkeppni að fá mér kaffibolla með vinkonu og kveðja hana að klára mastersritgerðina og prenta hana [...]

Read ‘Ofvirk?’

Ellismellir

14 August 2007 | molar | 56 Comments

Nýjasta fíknin á heimilinu eru krossgátur. Ég bíð með óþreyju eftir helgunum, ekki til að djamma, heldur til að leysa helgarkrossgátur Moggans. Laugardagsgátan er klassísk, en sunnudagsgátan er toppurinn á tilverunni þessa dagana. Það var reyndar Andrés sem kom mér upp á lagið með hana. Nú sitjum við skötuhjúin eins og gömul hjón með sitthvora [...]

Read ‘Ellismellir’

Olga

2 August 2007 | molar | 301 Comments

Í gær gerði ég eitthvað sem hefur staðið til í langan tíma en ég hef aldrei komið í verk: ég keypti mér ný gleraugu. Þessi kaup voru orðin algjörlega tímabær þar sem gleraugun sem ég á núna eru frá síðustu öld og þar af leiðandi hvorki nógu sterk né nógu töff (þó þau séu, eins [...]

Read ‘Olga’

Ágúst

1 August 2007 | molar | 358 Comments

Dagatalið sýnir, mér til mikillar furðu, að ágústmánuður sé runninn upp. Það er því ekki úr vegi að tilkynna þeim sem ekki vita að við erum á leiðinni heim í haust. Fyrir fullt og allt. Eða að minnsta kosti í nokkur ár. Nú eigum við bara eftir að klára mastersritgerðirnar okkar, finna okkur vinnu og [...]

Read ‘Ágúst’

Hvort grasið er grænna?

19 July 2007 | molar | 528 Comments

Á meðan umhverfisvinum Sigga pönk er lýst sem „hampreykjandi hippapakki“ heima á Íslandi hefur stórfurðuleg tíska komist af stað meðal háttsettra breskra stjórnmálamanna. Síðasta sólarhringinn hafa þeir keppst við að játa í fjölmiðlum að hafa neytt kannabisefna á yngri árum. Íslendingar setja semsagt samasemmerki á milli þess að vera iðjuleysingi og reykja hass. Breskir stjórnmálamenn [...]

Read ‘Hvort grasið er grænna?’

Breytt heimsmynd og allt það..

9 July 2007 | molar | 4 Comments

Á laugardaginn, sem virðist hafa verið eini góðviðrisdagurinn á sunnanverðu Englandi í sumar, ákváðum við að skella okkur í lautarferð til Lundúna. Það var gömul kunningjakona, hin danska Helene, sem stóð fyrir fjörinu og ekki spillti fyrir að von var á henni Katie frá Edinborg líka. Það var á leiðinni á lestarstöðina í Brighton sem [...]

Read ‘Breytt heimsmynd og allt það..’

Aðlögunarhæfni?

17 June 2007 | molar | 2,049 Comments

Einu sinni fór í taugarnar á mér að flytja inní íbúð þar sem veggfóðrið virtist laust frá veggjunum. Síðan truflaði mig hvað gustaði gegnum íbúðina þegar veðrið lét vita af sér. Þá fóru köngulærnar, silfurskotturnar og maurarnir í taugarnar á mér. Nokkrum mánuðum síðar hef ég lært að laga mig að breskum húsum og minnka [...]

Read ‘Aðlögunarhæfni?’

Arnarauga

15 June 2007 | molar | 7,440 Comments

Í morgun fór ég í sjónpróf hjá enskum augnlækni. Við vorum bæði jafn hissa yfir því hvað mér gekk vel að þylja upp stafina á veggnum hans, enda hefur sjón mín farið versnandi með hverju árinu síðan ég var krakki. Svo fattaði ég loksins að maður á víst að taka úr sér linsurnar áður en [...]

Read ‘Arnarauga’

Icelander in New York

23 May 2007 | molar | 1,960 Comments

Fyrir þá sem ekki vita erum við skötuhjúin í henni Ameríku þessar vikurnar. Aðaltilefni ferðarinnar var útskrift Siggu systur sem hlaut doktorsgráðuna sína um helgina. Auk þess höfum við verið að kynna okkur úthverfastemningu New Jersey-fylkis þar sem eru hlutfallslega fleiri jeppar en í Reykjavík, take-out staðir fyrir allan mat sem hugurinn girnist og virkilega [...]

Read ‘Icelander in New York’

Evrópublokkirnar

13 May 2007 | molar | 6 Comments

Það var óskaplega gaman að heyra Terry Wogan lýsa keppninni hérna. Tvennt truflaði hann framanaf; að Bretar væru með núll stig og að lönd kysu alltaf í blokkum. Þar nefndi hann sérstaklega Balkanskaga, Íberíuskaga, Austur-Evrópu og Norðurlönd. „Again, they vote in blocks,“ sagði hann og dæsti. Loksins duttu svo inn stig hjá Bretum þegar grannríkið [...]

Read ‘Evrópublokkirnar’

Ástríðan sem súra regnið drap*

11 May 2007 | molar | 42 Comments

Hvað gerist þegar eylandið sendir mátulega hallærislegan glansrokkara í Eurovision 1986 og endurtekur svo leikinn þegar hann er orðinn 21 ári eldri? Jú, þulir BBC neyðast til að nota afskaplega klisjukenndan brandara til að afkynna hann í undankeppninni: Níundi áratugurinn er í símanum, Eiríkur. Hann vill að þú skilir sér síða hárinu og leðurbuxunum. Mikið [...]

Read ‘Ástríðan sem súra regnið drap*’

Lúxuskrísa

3 May 2007 | molar | 219 Comments

Þegar aðaláhyggjuefnið er hvaða pöbb maður eigi að fara á – Pitcher and Piano eða Lion and the Lobster – fer maður alvarlega að pæla í því hvort rétta mastersritgerðarefnið fáist við stuðlun.

Read ‘Lúxuskrísa’

Liverpool-slys

1 May 2007 | molar | 10 Comments

Rétt í þessu hrökk ég við í sófanum mínum. Hinu megin við stofuvegginn okkar, úr íbúð nágrannanna, heyrðist skyndilega mikið öskur. Meðan ég hlustaði með skelfingu á þetta garg fór ég ósjálfrátt að ímynda mér hvað hefði getað orsakað það. Var nágranninn búinn að skera af sér handlegginn við eldamennsku? Var hann með byssu innbrotsþjófs [...]

Read ‘Liverpool-slys’

Tómur kofinn

12 April 2007 | molar | 513 Comments

Það er hálf tómlegt í kotinu okkar þessa dagana. Síðustu vikur hefur verið mikill og góður gestagangur, sem hófst með komu Svenna bróður og Þórhildar yfir rúma helgi. Nokkru seinna mættu Sigga og Þórir á svæðið sem íslenskir fulltrúar Norwich og báru saman bæina tvo af miklum móði. Ég er ekki frá því að Brighton [...]

Read ‘Tómur kofinn’

Ensku fréttirnar.

21 March 2007 | molar | 4,067 Comments

Í dag er fjallað um Kárahnjúka á fréttasíðu BBC. Loksins, segi ég, því ég bjóst alltaf við því að þurfa að svara miklu meira fyrir stóriðju og hvalveiðar Íslendinga en raun ber vitni. Kannski er það til marks um fréttamat fólksins í kringum mig að „stóru“ fréttirnar að heiman bliknuðu í samanburði við sjokkið sem [...]

Read ‘Ensku fréttirnar.’

Á gervihnattaröld

15 March 2007 | molar | 196 Comments

Aldrei hætti ég að furða mig á því hvað tíminn líður hratt. Veturinn sem aldrei kom virðist vera á enda og tímasókn okkar Andrésar sömuleiðis. Já, í dag fórum við í síðustu tímana okkar við Sussex-háskóla. Næstu mánuði er það bara sjálfsaginn sem dugir og í lok ágúst ættum við að hafa snarað sitt hvorri [...]

Read ‘Á gervihnattaröld’

Morð í beinni?

7 March 2007 | molar | 57 Comments

Ein BBC-sjónvarpstöðvanna er farin að sýna ansi áhugaverða þáttaröð undir heitinu ‘Kill it, cook it, eat it’. Þarna er á ferðinni enginn venjulegur matreiðsluþáttur, því hráefninu er fylgt eftir frá því að það er spriklandi í sveitinni og þar til það liggur á fínum diski með kartöflum og sósu. Þannig er verið að vekja athygli [...]

Read ‘Morð í beinni?’

Labov-æði

6 March 2007 | molar | No Comments

Í gær veittist mér smávegis innýn í líf hinnar fullorðnu málvísindakonu. Ég vippaði mér upp í lest til Cambridge með nokkrum bekkjarsystrum mínum til að hlýða á einn frægasta málvísindamann samtímans, hinn ameríska William Labov. Svo settumst við stöllur á veitingahús eftir fyrirlesturinn og ræddum efni hans fram og aftur. Mjög fullorðinslegt allt saman. Á [...]

Read ‘Labov-æði’

Sprengstoff?

20 February 2007 | molar | 59 Comments

Helginni vörðum við í góðum félagsskap í Berlín, þar sem við kíktum á þorrablót íslendingafélagsins. Harðduglegu stúdentarnir sem við erum tóku að sjálfsögðu nokkrar námsbækur með sér yfir sundið. Efst í bunkanum hjá mér var stórskemmtileg grein sem heitir „What is al-Qaeda?“ og eftir því sem neðar dró varð lesefnið enn svæsnara. Ég gat fátt [...]

Read ‘Sprengstoff?’