molar Category Archives
Spring?
15 February 2007 | molar | 10 Comments
Það er 15. febrúar. Randaflugurnar eru komnar á kreik og brumið farið að skreyta trjágreinarnar. Nú ætti ég líklega að tjá mig eitthvað um gróðurhúsaáhrifin en ég er of ánægð með hlýindin til að nenna að pirra mig yfir þeim.
Bjórbíllinn
13 February 2007 | molar | 6 Comments
Fyrirlestur gærdagsins endaði með ósköpum. Viðstaddir fjölmenntu á knæpu í Brighton til að borða og drekka, en þá kom babb í bátinn. Breskar knæpur loka nefnilega alltaf um ellefuleytið en fólk vildi halda áfram. Áfram var haldið á Clifton Road, í kjallaraíbúðinni okkar. Þegar á leið gekk mjög á vistirnar þannig að fyrirsjáanlegt var að [...]
Slá í gegn
2 February 2007 | molar | 6 Comments
Um daginn barst okkur tölvupóstur þar sem formaður vísindafélags Sussex-háskóla bauð okkur að spreyta okkur í undankeppni fyrir “University Challenge” í sjónvarpinu. Það væri nú svolítið fyndið að rúlla upp spurningakeppni í BBC fyrst maður meikaði það aldrei í Gettu Betur hér á árum áður. En aftur á móti er mjög ólíklegt að undankeppnin gengi [...]
Oh man I LOVE THE CAKE!
18 January 2007 | molar | 19 Comments
Mér brá heldur betur í brún þegar ég sá nýja kennarann minn í morgun: var ekki bara hún Marjorie megrunarráðgjafinn knái úr Little Britain mætt á svæðið! Að minnsta kosti kona svo sláandi lík henni og með svo svipaða rödd að ég hélt virkilega að þetta væri hún. Auðvitað átti ég mjög bágt með mig [...]
Read ‘Oh man I LOVE THE CAKE!’
Barzan dauður
15 January 2007 | molar | No Comments
Þá er Barzan, litli bróðir Saddams, dauður. Ætli ég hefði nokkuð kippt mér upp við það nema fyrir þær sakir að ég minnist á hann í ritgerðinni sem ég á að skila í dag. Vegna nýjustu atburða þurfti ég að þræla mér í gegnum skjalið og breyta nokkrum sögnum í þátíð. Gerir það mig að [...]
Alls engir drullusokkar
10 January 2007 | molar | 1 Comment
Stundum er gott að búa í húsnæði á vegum háskólans. Ef eitthvað klikkar, eins og útiljósaperan eða niðurfallið, getum við bara sent umsjónarkonunni tölvupóst og annar háskólahúsvarðanna kemur að vörmu spori. Eldhúsvaskurinn hjá okkur er búinn að vera kenjóttur síðustu daga, ýmist stíflaður eða í fínu lagi. Við sendum umsjónarkonunni línu til að koma þessu [...]
Read ‘Alls engir drullusokkar’
Töfralausn í tölvupósti
9 January 2007 | molar | 2 Comments
Nú eru ekkert alltof margir dagar í skilafrest á ritgerðum fyrir haustönn og ekki laust við að ég væri orðin hálf stressuð vegna þess að “andinn” hefur einhvers staðar týnst á leiðinni milli Íslands og Englands. Í morgun fann ég svo leið út úr stressinu. Þar sem ég sat við skrifborðið, bíðandi eftir að komast [...]
Read ‘Töfralausn í tölvupósti’
Komin heim til Bjartabæjar
5 January 2007 | molar | 5 Comments
Lífið á Clifton Road er farið að ganga sinn vanagang þótt nýtt ár sé gengið í garð. Við erum búin að taka upp úr ferðatöskunum, raða jólabókunum upp í hillu og njóta þess að sofa í rúminu okkar. Haugur af skólabókum hrópar á athygli okkar, enda hefur hann verið stórlega vanræktur síðustu vikurnar. Fyrsta óvænta [...]
Read ‘Komin heim til Bjartabæjar’
Áramót(akveðjur)
31 December 2006 | molar | 6 Comments
Þegar ég kveiki á sjónvarpinu milli hátíða rifjast upp fyrir mér hvað mér þykir best við áramótin. Að þeim loknum losnar maður við helvítis flugeldaauglýsingarnar, sem hljóta að vera meðal þess versta sem sýnt er í sjónvarpi. Sá sem samdi lagið sem endar á „Hjálparsveit skáta skaffar dótið“ fær engin jólakort frá mér næstu áratugina.
Einsemdin etin burt
14 December 2006 | molar | 2 Comments
Hvað gerir grasekkill sér til dundurs? Hann eldar. Bestu samloku í heimi. (uppskrift)
Jólafrí
10 December 2006 | molar | 2 Comments
Þá er stundin loks að renna upp. Þetta árið tek ég mér langt jólafrí í faðmi vina og vandamanna á Íslandinu góða. Ég lendi í Keflavík um miðnætti annað kvöld og verð á landinu í meira en þrjár vikur. Andrés ætlar hins vegar að lifa piparsveinalífi í Brighton í eina viku áður en hann flýgur [...]
Einræðisherralottó
3 December 2006 | molar | 6 Comments
Nú eru ekki nema tveir mánuðir síðan ég breyttist úr hugvísindastúdent í félagsvísindastúdent, þannig að ég veit ekki alveg hvernig hlutirnir virka í alþjóðasamskiptadeildinni minni. Má maður setja af stað veðmál um það hvor hrekkur fyrr uppaf — Pinochet eða Fidel?
Skrjáf
29 November 2006 | molar | 1 Comment
Hvernig stendur á því að fólkið sem kemur of seint í tíma – sem er að sjálfsögðu alltaf sama fólkið – notast aldrei við skólatöskur eins og aðrir heldur plastpoka sem skrjáfar endalaust mikið í?
Glögg og fleiri góðir hlutir
25 November 2006 | molar | 3 Comments
Við erum ofsalega dugleg við að koma okkur í kynni við fólk frá ólíkum löndum og það er byrjað að borga sig nú þegar ýmsar hátíðir ganga í garð. Á fimmtudaginn vorum við boðin í stóra þakkagjörðarhátíðarveislu hjá bandarískum kunningja okkar þar sem við fengum kalkún með fyllingu, “sweet potatoes” og annað tilheyrandi. Við reyndum [...]
Read ‘Glögg og fleiri góðir hlutir’
Ritstuldarvikan
22 November 2006 | molar | 5 Comments
Í skólanum okkar er lögð ofuráhersla á hvað það er agalegt að fremja ritstuld. Eitt besta dæmið um það var síðasta vika sem hlaut nafnið “Plagiarism Week”. Ýmsar uppákomur voru skipulagðar til að kynna hugtakið og efla vitund fólks á því. Nemendur voru innilega hvattir til að taka þátt. Íranski bekkjarbróðir minn svaraði aldeilis kallinu. [...]
Would you like a cup of tea?
20 November 2006 | molar | 1 Comment
Auglýsingar í kvikmyndahúsum Brighton taka allt of langan tíma og ekki var laust við að við Andrés værum orðin heldur óþreyjufull að bíða eftir honum Borat í gær. Þó vakti ein auglýsingin heldur betur athygli okkar. Hún kom frá bíóinu sjálfu, sem virðist vera að hvetja ólíka aldurshópa til að mæta á mynd. Sérstakt þema [...]
Read ‘Would you like a cup of tea?’
Snakk og gourmet-snakk
8 November 2006 | molar | 5 Comments
Ég skal vera fyrst manna til að viðurkenna það að ég er afskaplega ginnkeypt fyrir hvers kyns sölubrellum. Sérstaklega þegar kemur að kartöfluflögum sem eru í miklu úrvali hér. Ég skammast mín til dæmis ekkert fyrir það að punga út nokkrum pensum aukalega til að kaupa snakk með bragðinu “vintage cheddar & red onion chutney” [...]
Milli himins og jarðar
7 November 2006 | molar | 8 Comments
Mér finnst óttalega gaman að læra málvísindi, ekki síst vegna þess að málvísindamönnum virðist ekkert óviðkomandi. Í bókinni sem ég er að lesa núna, Queerly Phrased, er til dæmis einn kafli um málnotkun heyrnarlausra lesbía og annar sem heitir A Queer Male Representation in Jewish American Speech. Við svona lestur hvarflar samt að manni að [...]
Einróma
2 November 2006 | molar | 2 Comments
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn minn um þessar mundir er breskur raunveruleikaþáttur af bestu gerð – “Unanimous”. Nú hafa þáttagerðarmenn gengið alla leið við að gera niðurlægingu og þjáningu þátttakenda sem mesta, allt til þess að fólk eins og ég skemmti sér. “Leikurinn” gengur út á það að níu manns er hrúgað niður í ógeðslegt neðanjarðarbyrgi þar sem húsgögnin [...]
Brrrrrr
1 November 2006 | molar | 2 Comments
Í gær montaði ég mig af því í símann til Íslands að haustið væri með endemum blítt í Brighton. Hitamælirinn sýndi 16 gráður og úti skein sólin eins og um hásumar. Í dag monta ég mig ekki. Nóvember beið ekki boðanna og lét okkur vita strax í morgun að hann væri mættur á svæðið. Þar [...]