molar Category Archives
Orðinn lókal
31 October 2006 | molar | 1 Comment
Í gærkvöld skildu leiðir okkar Rúnu á krá. Ég fór snemma heim að sofa (enda átti ég að halda fyrirlestur í dag), en Rúna hélt samnemendum mínum selskap. Nokkrum tímum síðar skreið hún uppí rúm til mín, þar sem ég lá steinsofandi. Einhverra hluta vegna sá ég ástæðu til að tala við hana ensku þegar [...]
Gamlir tímar
27 October 2006 | molar | 43 Comments
Í gærkvöldi fór ég á pöbbarölt með bekkjarfélögum mínum. Kvöldið varð heldur stutt í annan endann því ég var ekki með skilríki og þau voru nauðsynleg til að komast inn á hasarklúbbinn Casablanca. Sjaldan hef ég lent í öðru eins tímaferðalagi til Lækjargötu ársins 1995.
Nýir tímar
25 October 2006 | molar | 3 Comments
Aldrei framar að standa í troðfullri matvöruverslun og reyna að ákveða í skyndi hvað skal hafa í matinn. Aldrei framar að rúlla á undan sér innkaupakerrunni gang eftir gang í leit að einhverju sem er uppselt. Aldrei framar að standa í biðröð við búðarkassann. Aldrei framar að telja saman smápeninga. Aldrei framar að raða í [...]
Bjór, bjór…
23 October 2006 | molar | 2 Comments
Mikið þótti mér skemmtilegur siðurinn sem þýsku prófessorarnir höfðu — að fara með nemendum sínum á bjórgarð í lok hvers námskeiðs. Á nýjum stað kynnist maður nýjum sið. Hér stendur deildin mín fyrir fyrirlestraröð, þar sem vikulegum fyrirlestrunum lýkur á því að allir fara á einn af stúdentabörunum “on campus” og fá sér kollu. Fyrir [...]
Upp, upp, upp á fjall…
14 October 2006 | molar | 2 Comments
Ég hef aldrei verið talin sérlega ratvís manneskja. Einföldustu hugtök eins og hægri og vinstri geta vafist óskaplega fyrir mér og ekki hjálpa höfuðáttirnar fjórar mér mikið heldur. Þar að auki er ég óttalega léleg við að leggja leiðir á minnið svo það er með öllu óvíst að ég rati til baka heim til mín [...]
Planet of the Students
6 October 2006 | molar | 3 Comments
Háskólasvæðið okkar finnst mér afskaplega merkilegt. Það liggur örlítið fyrir utan borgina og er heill heimur út af fyrir sig. Ef Brighton sykki í sjó eða rigningu, sem kæmi mér ekki svo mikið á óvart eftir veðurfar síðustu daga, væri maður í góðum málum á háskólasvæðinu – þar er allt til alls. Eftirfarandi aðstöðu hef [...]
Þjóðverjarnir við
28 September 2006 | molar | 2 Comments
Það er merkilegt að flytjast frá Þýskalandi til Englands og finna út að maður hefur náð að sía inn svolítinn Þjóðverja í karakterinn á þessum tveimur árum í Berlín. Það kom kannski ekki sérlega á óvart að heyra að margir héldu að við værum frá Þýskalandi á leið okkar til Brighton, enda vorum við á [...]
Björk who?
26 September 2006 | molar | 4 Comments
Sú var tíðin að fólk sem við kynntumst og heyrði að við værum frá Íslandi tengdi landið umsvifalaust við Björk. Sumir gengu skrefinu lengra og nefndu Sigur Rós, örfáir kunnu skil á Múm. Kanadíska nágrannakonan okkar af efri hæðinni sýndi okkur í gær að nú er öldin önnur. Það sem tengdi hennar huga við landið [...]
Komin
24 September 2006 | molar | 1 Comment
Rétt að rapportera örstutt. 1500 kílómetrum og einni viku síðar erum við Rúna flutt frá Berlín til Brighton. Hér skín sólin og háskólinn úthlutaði okkur huggulegri íbúð með sérgarði, þannig að við getum ekki kvartað. Næsta vikan fer í að kynnast University of Sussex og skila bílnum til Kölnar (vegna reglna bílaleigunnar borgar sig sumsé [...]
Lagt í’ann
17 September 2006 | molar | 3 Comments
Þá erum við búin að koma öllum eigum okkar fyrir í Renault Scenic bílnum sem við leigðum. Tæknilega séð erum við því heimilislaus næstu vikuna, þegar við fáum íbúðina í Brighton afhenta. Í millitíðinni ætlum við að rúnta um Evrópu — gista hjá vínbónda í Móseldalnum og í litlu belgísku þorpi. Fyrsta stopp verður Bad [...]
Málum bæinn… hvítan
15 September 2006 | molar | 507 Comments
Leigusalinn okkar vildi endilega að við skiluðum íbúðinni hvítmálaðri og hreinni þegar við flyttum út. Það óx okkur alltaf dáldið í augum þangað til núna — að verki loknu. Aldrei hefði ég trúað því að við Rúna (með dyggri aðstoð Marie, vinkonu okkar) þyrftum ekki nema dagstund til að sletta málningu á 50 fermetra íbúðina. [...]
Flutningar
12 September 2006 | molar | 4 Comments
Það er allt að gerast á Dunckerstrasse 12. Heimilsmenn eru komnir á lappir árla dags og farnir að pakka, taka til og skrúfa sundur húsgögn. Í dag á að flytja húsgögnin til vina í Berlín og svo munum við mála íbúðina. Nú eru ekki nema um það bil fimm dagar eftir af Berlínardvöl okkar skötuhjúa [...]
Rammstein
6 September 2006 | molar | 3 Comments
Það, að enginn sé spámaður í föðurlandi sínu, sannast á því hvað Þjóðverjar sýna hljómsveitinni Rammstein mikið fálæti. Áður en ég flutti til Berlínar hélt ég að þeir væru þýskari en allt sem þýskt er, en á þeim tveimur árum sem síðan eru liðin hef ég ekki heyrt eitt einasta lag með þeim. Þangað til [...]
Sloppið með skrekkinn?
1 September 2006 | molar | 2 Comments
Fyrir þremur mánuðum sat ég í einni af fjórum Tupolev-154 flugvél íranska flugfélagsins Iran Air Tours frá Shiraz til Mashhad. Nú systurvél hennar komin í heimsfréttirnar fyrir að hafa brunnið í lendingu á flugvellinum í Mashhad, með þeim afleiðingum að tugir farþega létust. Samkvæmt upplýsingum á netinu var skráningarnúmer vélarinnar EP-MCF. Á myndinni sem ég [...]
31. ágúst 2006
31 August 2006 | molar | 6 Comments
Dagurinn í dag er bæði merkur og góður. Á stofuborðinu liggur mastersritgerðin mín innbundin í þremur eintökum og eftir örfáar klukkustundir munu tvö þeirra liggja á skrifborði ritarans í European Master in Intercultural Education. Meistari Rúna, meistari Rúna…
Hóppóstar, eða ekki
20 August 2006 | molar | 13 Comments
Bekkurinn minn í mastersnáminu er með svona grúppu á yahoo. Þannig er hægt að hafa samskipti á yahoo-síðunni eða senda tölvupóst á eitt ákveðið hópnetfang þegar þarf að hafa samband við alla. Þetta getur verið mjög hentugt fyrirkomulag. Til dæmis er ein stelpan voða samviskusöm og man alltaf eftir að senda á þetta netfang upplýsingar [...]
Myrkur matur
18 August 2006 | molar | 3 Comments
Annað okkar átti afmæli í vikunni. Það var ekki ég. En það var allt í lagi, því mér finnst líka ofsalega gaman þegar Andrés á afmæli. Ég er alveg jafn spennt að fylgjast með honum opna pakkana eins og ég er þegar pakkarnir eru ætlaðir mér. Og svo fæ ég að fara út að borða. [...]
Skál í boðinu!
8 August 2006 | molar | 2 Comments
Meðan fólkið á Íslandi fagnaði verslunarmannahelginni tókum við Andrés þátt í bjórmílunni, þriðja árið í röð. Það er ekki laust við að þessi blessaða hátíð sé farin að skipa jafn stóran sess í dagatalinu hjá manni eins og jól og páskar. Að minnsta kosti var frábært að þræða bjórtjöld, þýska skyndibitabása og hópa af Þjóðverjum [...]
Óvænt fórnarlömb hitabylgju
29 July 2006 | molar | No Comments
Undanfarnar vikur hafa berlínskir hitamælar lítið farið undir þrjátíu gráðurnar. Þetta hef ég hægt og sígandi sætt mig við. Ég hef sætt mig við að vera alltaf sveittur utan dyra. Ég hef sætt mig við að lofthiti íbúðarinnar okkar fari aldrei niður í þær 20°C sem maður hefur vanist innan dyra. Ég er hins vegar [...]
Read ‘Óvænt fórnarlömb hitabylgju’
Heima
25 July 2006 | molar | 2 Comments
Eftir góða tólf daga dvöl heima á Íslandi erum við nú snúin aftur heim til Berlínar. Hitastigið hér er jafn hátt og þegar við kvöddum borgina en að öðru leyti má sjá nokkra breytingu. Þegar við komum klyfjuð af flugvellinum í hverfið okkar tókum við strax eftir því að það sat varla nokkur hræða á [...]